Stjórnunarfélag Íslands var stofnað 24. janúar 1961. Að stofnun þess stóðu margir þjóðþekktir Íslendingar sem voru þá helstu frammámenn í viðskipta- og athafnalífi landsins.
Við stofnun félagsins var því ætlað það forystuhlutverk að efla áhuga og stuðla að vísindalegri stjórnun og hagræðingu í hvers konar rekstri einstaklinga, félaga og hins opinbera og vinna að samvinnu þeirra, sem slíkan áhuga hafa.
Markmiðið var að stuðla þannig að bættum atvinnuháttum og aukinni framleiðni sem leiða myndi til bættra lífskjara á Íslandi með því að ræða þessi mál á fundum og ráðstefnum félagsins og efna til fræðandi fyrirlestra innlendra og erlendra sérfræðinga.
Starf félagsins hefur verið öflugt í þá rúma fjóra áratugi sem það hefur starfað og verkefnin hafa endurspeglað fræðsluþarfir samtímans hverju sinni. Fyrstu starfsárin var lögð áhersla á að vekja upp umræðu um stjórnun með funda- og ráðstefnuhaldi með áherslu á að auka faglega þekkingu stjórnenda en eftir því sem þeirri þróun fleygði áfram og menntun stjórnenda batnaði, jókst áherslan á sértækari þarfir starfsfólks með styttri námskeiðum sem haldin voru bæði opin sem og innan fyrirtækjanna sjálfra.
Um árabil rak Stjórnunarfélagið öfluga skóla þ.m.t. tölvuskóla, málaskóla og skrifstofu- og ritaraskóla og var félagið stærsti fræðsluaðilinn á því sviði um tíma. Eftir því sem almennt framboð slíks náms jókst og fleiri fræðsluaðilar hófu starfsemi voru þessir þættir í starfi félagsins seldir og megináherslan lögð á innflutning bestu fáanlegu fyrirlesara erlendis frá sem margir hverjir hafa verið heimsþekktir.
Þannig hefur Stjórnunarfélagið viljað rækta það hlutverk sitt að vera farvegur nýrra hugmynda, aðferða og ráða inn í íslenskt viðskipta- og athafnalíf og vera í fararbroddi fyrir aukinni velmegun og framförum á Íslandi.